Skilmálar

Síðast uppfært 5. október 2026

Þessir skilmálar gilda um þátttöku í Fantasy Deild Coolbet („leikurinn“), sem rekinn er í samstarfi við Coolbet. Með því að stofna aðgang og taka þátt samþykkir þú skilmálana.

Þátttaka

  • Þátttaka er ókeypis.
  • Þú verður að vera 18 ára eða eldri. Við skráningu staðfestir þú aldur og gefur upp fæðingardag.
  • Hver einstaklingur má aðeins eiga einn aðgang. Aðgangar eru persónulegir og óframseljanlegir.
  • Upplýsingar sem þú gefur upp verða að vera réttar.

Leikreglur

Leikurinn fer fram samkvæmt reglum leiksins. Reglunum getur verið breytt á tímabilinu ef nauðsyn krefur, og breytingar eru þá birtar á reglusíðunni.

Tölfræði er fengin úr opinberum leikskýrslum. Hún er yfirfarin áður en stig eru birt, og stig geta verið leiðrétt ef tölfræði reynist röng, einnig eftir birtingu.

Verðlaun

  • Verðlaun eru inneign hjá Coolbet að verðmæti 1.000 evra fyrir 1. sæti og 500 evra fyrir 2. sæti í lok tímabilsins. Verðlaunin eru ekki greidd út í peningum.
  • Ef lið deila verðlaunasæti eru verðlaunin fyrir þau sæti sem þau ná yfir lögð saman og skipt jafnt á milli þeirra.
  • Tíu þátttakendur eru dregnir af handahófi úr hópi þeirra sem eru með fullskipað lið þegar fyrsta umferð lokar. Hver þeirra fær 100 evra inneign hjá Coolbet til að veðja á íslensku körfuna.
  • Haft er samband við vinningshafa í gegnum netfangið sem tengt er aðganginum. Svari vinningshafi ekki innan 7 daga geta verðlaunin gengið til næsta þátttakanda.
  • Óska má eftir staðfestingu á aldri og auðkenni áður en verðlaun eru afhent.
  • Ekki er hægt að skipta verðlaunum í annað eða framselja þau.

Sanngjarn leikur

Aðgangi getur verið lokað, eða þátttakanda vísað úr leik, ef hann brýtur skilmálana, til dæmis með fleiri en einum aðgangi, röngum upplýsingum eða tilraunum til að misnota leikinn. Slíkur þátttakandi á ekki rétt á verðlaunum.

Ábyrgð

Leikurinn er í boði án ábyrgðar. Ekki er ábyrgst að hann sé alltaf aðgengilegur eða villulaus, og engin ábyrgð er tekin á tjóni sem kann að hljótast af þátttöku, umfram það sem lög kveða á um.

Leikurinn er ekki á vegum Körfuknattleikssambands Íslands (KKÍ) né félaganna í deildinni.

Persónuupplýsingar

Um meðferð persónuupplýsinga fer samkvæmt persónuverndarstefnu leiksins.

Lög og varnarþing

Um skilmálana gilda íslensk lög. Ágreiningsmál skulu rekin fyrir íslenskum dómstólum.